Djúpið
Djúpið-línan er röð af borðbúnaði, skálum og diskum, sem mótuð eru með djúpri, opinni sveigju þar sem glerungurinn flæðir eins og villt náttúran í Djúpinu á Vestfjörðum. Innblásturinn að litapallettunni kemur frá öllum árstíðum – frá ísköldum vetrum yfir í hlýja sumardaga þar sem allt er þakið fallegum gróðri og blómum.
Sérhver hlutur er undirstrikaður með marglaga, silkimjúkum mattum glerungum sem eru mjúkir viðkomu og segja frá leyndarmálum Djúpsins.





